I'm back jessjess!!
Jæja elsku lömbin mín, þá hef ég loksins ákveðið að byrja að drita einhverju aftur inn á þetta blogg drasl. Veit ekki hversu duglegur ég verð að bulla eitthvað á þessu, nenni ábyggilega ekkert að vera að þessu. En allavega, allt svona skítsæmilegt að frétta héðan. Ég er enn ekki kominnn með vinnu og er satt að segja að fá svolítið leið á að búa hérna. En það stundum batnar svo þegar að við förum að spila. Dror er í New York núna en er væntanlegur á morgunn, þannig að þá getum við farið að gigga almennilega. Það er búið að skrá okkur í einhverja asnalega hljómsveitarkeppni hérna, en það gæti verið fínt þar sem að maður getur unnið nokkuð góð verðlaun hérna. Svo erum við búið að bóka okkur á nokkra góða tónleika í Ísrael í apríl og einnig munum við spila live í útvarpsþætti þar. En það er svo bara spurning með að koma sér þangað, við fáum allt borgað undir okkur (mat, drykki, gistingu ofl.) en við þurfum að koma okkkur þangað sjálfir, en við erum einmitt að vinna í því núna, það gæti orðið soldið strembið.
Ég var svo hjá henni Camille í gær og þar fékk að sjá DVD promo music video sem að var verið að gera fyrir hana og okkur í hennar bandi (Camille Davila), og það er ekkert smá kúl....ðí öltimit!!
Annars sit ég bara hér á Korova eins og alla aðra daga......bleh!!!
